Gleðilega Sæluviku
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning, Lokað efni
12.04.2026
kl. 21.18
Karl Luðvíksson og Sigfús Ingi Sigfússon í fremstu röð. Fulltrúar frá Pylsaþyti og makar í aftari röð. MYNDIR: ÓAB
Sæluvika Skagfirðinga var sett í dag við hátíðlega athöfn í Safnahúsi Skagfirðinga. Vel var mætt og góð stemning meðal gesta. Venju samkvæmt hófst dagskráin á laugardegi, svokallaðri forsælu, en að morgni fór dágóður hópur rútuferð um sögu- og æsluslóðir Indriða G. Þorsteinssonar undir leiðsögn Kristjáns B. Jónassonar. Um kvöldið var síðan stórleikur í Síkinu og í Miðgarði stóð Karlakórinn Heimir fyrir Sæluvikutónleikum.
