Skírdagstónleikar með Hljómbrá

2. apríl kl. 20:00-21:00 Hvað er að gerast Sauðárkrókskirkja
2 apr

Að kvöldi skírdags hefur um árabil verið boðið til tónleika skírdagskvölds í Sauðárkrókskirkju.

Þar er minnst atburðanna á skírdagskvöld með óhefðbundinni altarisgöngu í hléi. Eins verður það í ár og núna ætla þær söngdívurnar í Hljómbrá að syngja lög sem hæfa tilefninu, bæði trúarleg og veraldleg.

Hljómbrá skipa Guðrún Helga Jónsdóttir, Íris Olga Lúðvíksdóttir og Kolbrún Erla Grétarsdóttir, undirleikari Rögnvaldur Valbergsson
Aðgangur er ókeypis.

Verið öll velkomin

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.