Fyrir fáeinum árum fór fram mikil umræða í landinu um innflutning á hráu kjöti og voru þá margir landsmenn gagnrýnir á að íslensk stjórnvöld nýttu sér ekki ákvæði EES samningsins um heimildir til undanþágu frá innflutningi á hrávöru sem þó væri að finna í þeim samningi. Kunnur er ásetningur Evrópusambandsins að hafa eins litlar undanþágur og takmarkanir og kostur er á verslun með matvæli og á hið sama við um flutning á lifandi dýrum. Íslendingar hafa sem betur fer ekki undirgengist þennan strangtrúnað óheftrar markaðshyggju að fullu þótt þegar hafi þeir gengið of langt að mínu mati og þyrfti að kanna að hvaða marki mætti endurvekja vannýttar heimildir EES samningsins. Þetta liggur nánast í augum uppi.
Um miðjan mars kom uppáhalds Íslendingur heimsbyggðarinnar loks heim til Íslands og hélt tvenna tónleika fyrir alls 16 þúsund manns. Ég held að allir landsmenn séu rígmontnir af henni Laufeyju okkar og kannski ekki síst vegna þess að hún er ekki aðeins frábær tónlistarkona, ung, hæfileikarík og glæsileg, heldur er ekki annað að sjá og heyra en að hún sé góð manneskja.
Í þeim leiðinda veðrabrigðum með roki og snjókomu sem að undanförnu hafa verið að hrjá okkur Skagfirðinga líkt og aðra landsmenn hefur undirrituðum borist fyrirspurnir um fyrirkomulag snjómoksturs í Skagafirði. Við nánari skoðun kom ýmislegt í ljós sem ástæða er til að upplýsa íbúa sveitarfélagsins um.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Tónlistarkonan Harpa Þorvaldsdóttir er uppalin á Hvammstanga en býr nú í Reykjavík. Harpa er dóttir Þovaldar Böðvarssonar, fyrrum rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Norðurlandi vestra, og Hólmfríðar Skúladóttur. Harpa hefur sungið síðan hún man eftir sér en hljóðfærið hennar er píanó. „Hef ekki geta skilið það við mig frá því ég byrjaði að læra 6 ára gömul,“ segir Harpa, en hún kemur fram á tónleikum á Hvammstanga þann 4. júní til styrktar Menningarfélagi Húnaþings vestra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.