Vísnaþáttur Feykis er afmælisbarn dagsins
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
01.04.2026
kl. 08.00
Guðmundur heimsótti Feyki og Nýprent í síðustu viku og fékk örlítinn glaðning í tilefni af tímamótunum. Þá var sammælst um það að hann héldi áfram á sömu braut og Vísnaþættirnir góðu halda því áfram. Á myndinni má sjá Guðmund ásamt starfsfólki Feykis og Nýprents sem alltaf hefur, með einum eða öðrum hætti, föndrað við þáttinn í gegnum tíðina. Frá vinstri: Klara, Sigga, Gunnhildur, Guðmundur og Óli Arnar. MYND GÍSLI SIGURÐSSON
Í dag 1. apríl er ansi merkilegur dagur í sögu Feykis, því á þessum degi fyrir 39 árum síðan birtist fyrsti vísnaþátturinn í fréttablaði Feykis. Maðurinn sem á allan heiður að þættinum þarf ekki að kynna fyrir lesendum Feykis, því Guðmundur okkar Valtýsson bóndi á Eiríksstöðum í Svartárdal hefur séð um þáttinn í þessi 39 ár sem hann hefur verið í blaðinu og ekki misst úr þátt. Þættirnir eru orðnir 900 talsins og verður það að teljast þrekvirki og afrek.
