Gleðilega hvítasunnu

Hvítasunnan, verk frá byrjun 14. aldar, eftir Duccio di Buoninsegna. Mynd sótt á Vísindavefinn.
Hvítasunnan, verk frá byrjun 14. aldar, eftir Duccio di Buoninsegna. Mynd sótt á Vísindavefinn.

„Á hvítasunnudag tóku postularnir á móti heilögum anda. Þeir töluðu tungum -- það er mæltu þannig að hver og einn nærstaddur skildi þá líkt og þeir töluðu á hans móðurmáli, en þar voru menn af mörgum þjóðernum. 3000 manns létust skírast til kristni þann daginn. Þessi þrjú þúsund voru fyrsti kristni söfnuðurinn,“ segir á Vísindavefnum.

„Hvítasunnan er auk páska og jóla ein af sameiginlegum höfuðhátíðum kristinnar kirkju. Hátíðin markaði upphaflega lok páskatímans sem stóð í 50 daga, en varð síðar að sjálfstæðum minningardegi um það sem kallað er úthelling heilags anda.

Heilagur andi er ein af þremur persónum hins þríeina Guðs sem kristnir menn trúa á. Hinar persónurnar tvær eru Guð faðir og Jesús Kristur. Hlutverk föðurins felst í sköpuninni, en hlutverk sonarins í endurlausninni undan veldi syndarinnar. Hlutverk heilags anda er aftur á móti að upplýsa sérhvern mann og endurnýja gjörvalla sköpun Guðs. Hann er því sagður vera sá umskapandi kraftur sem kemur öllu góðu til leiðar í mannlífi og náttúru. Meðal annars af þessum ástæðum er litið á hvítasunnudaginn sem stofndag kirkjunnar.“

Sjá nánar á Vísindavefur.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir