Maður ársins á Norðurlandi vestra 2018 - Kosning hafin

Ása Sigurrós Jakobsdóttir ásamt manni sínum og manni ársins 2017 á Norðurlandi vestra. Mynd: FE.
Ása Sigurrós Jakobsdóttir ásamt manni sínum og manni ársins 2017 á Norðurlandi vestra. Mynd: FE.

Eins og undanfarin ár stendur Feykir fyrir kjöri á manni ársins. Gefst íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust níu tilnefningar. Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feyki.is eða senda atkvæði í pósti á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki. Kosningin er þegar hafin og lýkur henni kl. 12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar 2019.

Anna Á. Stefánsdóttir Steinhólum í Hjaltadal
Anna vinnur sem leikskólastjóri „út að austan“ en auk þess er hún skógarbóndi ásamt eiginmanni sínum.  Anna var vör við að eitthvað væri óeðlilegt við andardrátt eiginmanns síns er þau voru stödd í sundlauginni á Hofsósi 17. mars 2018. Hún gekk til hans og reyndi að ýta í hann án árangurs og kallaði þá á hjálp, sundlaugarvörðurinn kom þá að og hjálpaði henni að lyfta eiginmanninum hennar upp á bakkann. Anna tók sig strax til og hóf endurlífgun. Þegar eiginmaðurinn hafði snúið til baka og kominn af stað í sjúkraflug hélt hún ótrúlegri ró, fékk þær upplýsingar sem þurfti frá lækninum og fór síðan á eftir eiginmanni sínum. Síðan þetta gerðist hefur hún staðið upprétt og hjálpað eiginmanni sínum af eljusemi, hún er klettur þessi kona. Það er mitt mat að hún, ásamt þeim sem voru á staðnum björguðu lífi mannsins. 

Brynleifur G. Siglaugsson Steinhólum í Hjaltadal
Brynleifur vinnur í FISK Seafood á Sauðárkróki, ásamt því er hann skógarbóndi að Steinhólum. Brynleifur fékk hjartastopp í sundlauginni á Hofsósi 17. mars 2018. Hann lifði það af, en einungis 25% þeirra sem fá hjartastopp utan sjúkrahúss ná því. Hann gekkst undir hjartaþræðingu þann dag og síðan aftur í lok maí. Eftir seinni aðgerðina átti hann að slaka á í samtals fimm daga, enda nýbúinn í hjartaþræðingu. Skemmst er frá því að segja að á fimmta degi var Brynleifur mættur í skógræktina sína og farinn að planta trjám eins og ekkert hafi gerst. 

 

Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir (fyrir hönd íbúa á Vatnsnesi og Vesturhópi) Sauðadalsá á Vatnsnesi. 
Hún hefur nú í haust og í byrjum vetrar leitt baráttu íbúa fyrir vegabótum á Vatnsnesvegi. Verið í forsvari fyrir íbúa í ræðu og riti, gengist fyrir íbúafundum m.a. með samgönguráðherra og verið óþreytandi að kynna málið í fjölmiðlum. Svo virðist að það hylli undir árangur í þeirri baráttu, allavega er Vatnsnesvegur nú kominn inn í umræðuna og þingmenn farnir að nefna hann í viðtölum í fjölmiðlum um veggjöld m.a. annars af Jóni „ekki samgönguráðherra“ þó hans hafi í engu verið getið í vegaáætlun.

 

 

Ólöf Ólafsdóttir Tannstaðabakka í Húnaþingi vestra
Ólöf er þvílík gullkona, hún er með parkinson en það stoppar hana ekki í því að gefa endalaust af sér. Til dæmis saumar hún teppi (bútasaum) og selur og gefur svo allan ágóða til góðgerðamála. Mikil perla.

 

 

 

Óskar G. Björnsson, skólastjóri Árskóla Sauðárkróki
Óskar hefur stýrt Árskóla af miklum myndarbrag síðan 1998 og gert skólann að einum þeim fremsta á landinu. Óskar er eintaklega þægilegur í samskiptum og samvinnu, alltaf tilbúinn að leysa mál og er skólastjóri í fremstu röð.

 

 

Rúnar Pál Hreinsson Grindum, Deildardal
Rúnar Páll vinnur sem sundlaugarvörður á Hofsósi meðfram búskap sínum að Grindum.  Hann var að vinna þann 17. mars sl. þegar að sundlaugargestur fær hjartastopp í vaðlauginni.  Hann hjálpaði eiginkonu mannsins að koma honum upp úr vaðlauginni og hefja endurlífgun sem og nýta hjartastuðtæki sem var á staðnum. Rúnar hélt ró sinni allan tímann og hafði fulla stjórn á þeim aðstæðum sem í gangi voru. Það er enginn vafi á því að hann, ásamt þeim sem voru á staðnum, björguðu lífi mannsins.

 

Steinn Kárason frá Sauðarkróki
Steinn hefur frá árinu 1995 haldið úti verkefninu Brimnesskógar og unnið að því verkefni launalaust og af mikilli hugsjón. Ýmis ljón hafa verið í veginum en stærst þeirra er hversu kostarýrt landið er sem plantað hefur verið í. Þúsundir plantna hafa verið gróðursettar en af þeim hefur aðeins lítill hluti lifað. Nú er loks farinn að sjást árangur og vonir vakna um að í móanum séu plöntur með lífsmarki sem enn eru að róta sig áður en þær hefja vöxt ofan jarðar.

 

 

Umhverfishópur á Skagaströnd
Á Skagaströnd er mikill mannauður sem lætur sig svo sannarlega varða samfélagið. Hópur fólks tók sig taki sl. sumar og snyrti ýmsa staði í bænum. Umhverfi Hólaneskirkju var t.d. fegrað svo var kirkjan þrifin hátt og lágt. Frumkvæði fegrunarhópsins hafði áhrif á samborgara sem hvatti þá til dáða. Fólk sem lætur sig varða samfélagið, í þessu tilfelli umhverfið, er góð fyrirmynd og til eftirbreytni. Þær sem standa að hópnum eru Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Björk Sveinsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Helena Mara Velemir.

 

Valdimar Eiríksson Vallanesi
Valdimar gekk í gegnum það áfall að fé hans var skorið niður vegna riðu, og það í þriðja skipti á hans ferli sem bóndi. Það er ekki létt verk að takast á við og mikilvægt að samfélagið standi með viðkomandi, enda er slíkur sjúkdómur og afleiðingar hans ekki á ábyrgð eins manns heldur allra Skagfirðinga. Sömuleiðis er mikilvægt að með þessari tilnefningu sé sýnt að samfélaginu er ekki sama um að fyrirtaks sauðfjárbú sé lagt niður sí svona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir