Árangur í verki - Lilja Rafney Magnúsdóttir

Landsfundur Vinstri grænna er um næstu helgi. Það verður gott að hitta félaga og ræða hvað hefur áunnist í stjórnarsamstarfinu og hvaða áherslumál við eigum að setja á oddinn næstu tvö árin. Þessi vettvangur hreinskilinna skoðanaskipta er okkur þingmönnum ákaflega mikilvægt veganesti inn í þinghaldið og stjórnarsamstarfið fram undan. Hvað hefur tekist vel og hvað má gera betur. Síðast hittumst við haustið 2017, þá var stutt í kosningar og í kjölfarið tóku VG sæti í ríkisstjórn og axlaði ábyrgð í óhefðbundnu stjórnarsamstarfi sem forsætisráðherra okkar leiðir af mikilli röggsemi. Heilbrigðis- og umhverfisráðherra okkar hafi einnig staðið sig með miklum sóma.

Nú er kjörtímabilið hálfnað og þá er viðeigandi að við komum saman aftur, förum yfir farinn veg og lítum björtum augum til framtíðar.

Það skapast yfirleitt fjörugar umræður um hin ýmsu mál þegar félagar í VG koma saman og það er sérstaklega gaman að rifja upp hversu mikið af þeim málum sem landsfundur VG 2017 ályktaði um rataði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Enn skemmtilegra er að rifja upp hversu margt hefur komist til framkvæmdar og verður það ekki allt tíundað hér.

Það má nefna eflt og endurbætt strandveiðikerfi, opinberan leigumarkað á makríl fyrir minni útgerðir og afkomutengd veiðigjöld eftir útgerðarflokkum. Allt þetta stuðlar að byggðafestu og jákvæðri byggðaþróun í sjávarbyggðunum sem VG leggur áherslu á í stjórnarsamstarfinu.

Þannig má einnig nefna að lækkun greiðsluþátttöku i heilbrigðiskerfinu, efling heilsugæslunnar og fjölgun hjúkrunarrýma um allt land, uppbygging almenningssamgangna og að gera innanlandsflug að hagkvæmari kosti fyrir íbúa á landsbyggðinni voru allt mál sem landsfundur VG 2017 kom sér saman um. Það á einnig við um sjálfbæran landbúnað og viðbrögð við vanda sauðfjárbænda.

Náðst hefur að skapa ramma utan um uppbyggingu fiskeldis sem sátt náðist um og að sú atvinnugrein byggist upp í sátt við náttúru og samfélag. Sú atvinnugrein hefur verið í miklum vexti á Vestfjörðum og blásið lífi í byggðarlög sem hafa átt í vök að verjast um langa hríð.

Það eru mörg verk eftir óunninn og við viljum svo gjarnan fá að heyra það milliliðalaust frá okkar félögum hvar við eigum að beita kröftunum á seinni helming kjörtímabilsins. Uppbygging flutningskerfis raforku, lækkun á dreifingarkostnaði á raforku og að koma í veg fyrir jarðasöfnun auðmanna eru málefni sem mér eru hugleikin og þarf að vinna áfram að svo byggðirnar séu sterkar og ákjósanlegar til búsetu.

Það er verið að halda áfram að byggja ofan á Lífskjarasamningana með kjarabótum til aldraðra, öryrkja og almennings m.a. í formi framboðs á ódýru húsnæði og þrepaskiptu skattkerfi og aðgengi að menntun og menningu óháð efnahag og búsetu við erum að efla velferðarkerfið.

Það skiptir máli hverjir sitja við stjórnvölinn eins og áherslan á umhverfis og loftslagsmál bera með sér og stór átak í innviðauppbyggingu í samgöngu og heilbrigðismálum eru skýr dæmi um.

Það er því deginum ljósara að það skiptir máli að VG komi að því að stjórna landinu.

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir