112 dagurinn í Húnaþingi –vestra

Nk. laugardag 11.2 er 112 dagurinn. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþing-vestra að bjóða öllum með í hópakstur um Hvammstanga og allir fá að fara með meðan pláss leyfir, samkvæmt tilkynningu frá Björgunarsveitinni Húnum.  Lagt verður af stað í hópaksturinn frá Húnabúð kl 13:30.

Að hópakstrinum loknum verður opið hús til klukkan 15:00 í Húnabúð, Slökkvistöðinni og hjá Sjúkraflutningum þar sem hægt er að skoða búnað, tæki o.fl. sem og að kynnast starfseminni sem fram fer hjá þessum aðilum. Allir eru hvattir til að láta sjá sig.

Fleiri fréttir