13 – 16 ára uppistandarar
Það er nóg um að vera í Húsi frítímans á Sauðárkróki flesta daga ársins en í kvöld föstudag munu unglingarnir ráða yfir húsinu en þetta föstudagskvöldið ætla þau að skemmta hvert öðru með uppistandi.
Uppistand hefur undan farið átt miklum vinsældum að fagna en kúnistin á bak við gott uppistand getur verið ansi snúin og ljóst að það er ekki öllum gefið að standa fyrir framan fullan sal af fólki og reita af sér brandara. Á heimasíðu hússins kemur fram að allir eru velkomnir í kvöld þó kvöldið sé ætlað unglingunum.