13 þjálfarar skráðir á þjálfaranámskeiðið

Alls eru 13 þjálfarar skráðir á þjálfaranámskeiðið sem haldið er í tengslum við körfuboltabúðir Tindastóls 2011. Námskeiðið hefst á morgun kl. 16 og eru erlendu þjálfararnir farnir að tínast í Skagafjörðinn.

Af þessu 13 þjálfurum eru 5 aðalþjálfarar úrvalsdeildarliða karla og kvenna, en það eru Njarðvíkingarnir Sverrir Þór Sverrisson sem þjálfar kvennalið félagsins og Einar Árni Jóhannsson og Friðrik Pétur Ragnarsson þjálfarar karlaliðsins. Ingi Þór Steinþórsson kemur frá Snæfelli og Benedikt Guðmundsson frá Þór í Þorlákshöfn.

Frá Njarðvík koma auk þess þau Bylgja Sverrisdóttir og Agnar Már Gunnarsson, frá Fjölni þeir Hjalti Vilhjálmsson og Bjarni Karlsson, Ágúst Guðmundsson frá Þór Akureyri tekur þátt auk heimafólksins Kára Maríssonar, Hrafnhildar Sonju Kristjánsdóttur og Karls Jónssonar.

Dagskrá námskeiðsins er fjölbreytt. Goran Miljevic ríður á vaðið á föstudag og fjallar um varnarreglur í maður á mann vörn. Borce Ilievski ætlar að sýna hraðaupphlaup inn í early offense, Perry Hunter ætlar þá að segja frá æfingaskipulagi í Henryville skólanum þar sem hann þjálfar og á eftir honum kemur Luigi Gresta sem talar um spacing, sérstakar aðstæður og reglur í uppbyggingu sóknarleiks liða. Það er síðan Spánverjinn Israel Martín, sem slær botninn í föstudaginn með umfjöllum um sóknarleik gegn svæðisvörn.

Á laugardag hefur Perry Hunter upp raust sína með motion-sókn, þá kemur Israel Martín með umfjöllun um 1-3-1 svæðisvörn. Luigi Gresta ætlar svo að fjalla um mismunandi aðferðir við að spila pick and roll og Borce Ilievski tekur fyrir varnaraðferðir gegn óbeinum screenum. Það verður síðan Goran Miljevic sem slær botninn í þjálfaranámskeiðið með umfjöllun um transition vörn, eða varnarleik úr sókn og til baka í vörn

Fleiri fréttir