14 stiga sigur drengjaflokks á Þór Ak í gær

Drengjaflokkurinn sigraði Þór frá Akureyri í Síkinu í gærkvöldi í síðasta leik sínum í riðlakeppni Íslandsmótsins þetta tímabilið. Lokatölur urðu 73-59 og með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppninni, þar sem strákarnir mæta KR-ingum sem urðu efstir í B-riðli.

Pálmi Geir fór mikinn í leiknum, en hann setti 27 stig og tók 19 fráköst. Reynald skoraði 12 stig og tók 18 fráköst, Einar Bjarni var með 10 stig og 8 fráköst, Ingimar skoraði 6 stig og tók jafn mörg fráköst, Ingvi Rafn skoraði sömuleiðis 6 stig og tók 5 fráköst, þá var Friðrik Þór með 5 stig og 3 stoðsendingar, Pétur Rúnar með 5 stig, Viðar 2 og Friðrik "Rondo" Jóhannsson var með eitt risasóknarfrákast.

Borce þjálfari var ágætlega sáttur við varnarleik strákanna en sagði að sóknarleikurinn hafi verið stirður á köflum.

Skv. regluegerð KKÍ um úrslitakeppni drengjaflokks, spila sigurvegarar riðlanna við lið nr. 4 í hinum riðlunum og lið nr. 2 spila við lið nr. 3 á milli riðlanna einnig. KR-ingar eru á toppnum í B-riðlinum og ljóst að Tindastóll leikur við þá röndóttu í úrslitakeppninni fyrstu umferð.

Vegna margra frestaðra leikja sem á eftir að spila, er ekki ljóst hvenær úrslitakeppnin í drengjaflokki hefst.

Tindastoll.is

Fleiri fréttir