1,5 milljón í endurnýjun á sviðsljósabúnaði

Samþykkt hefur verið að verja allt að 1,5 milljón króna í endurnýjun á sviðsljósabúnaði. Mynd: Bþ
Samþykkt hefur verið að verja allt að 1,5 milljón króna í endurnýjun á sviðsljósabúnaði. Mynd: Bþ

Á fundi byggðaráðs Svf. Skagafjarðar í síðustu viku var lagður fram tölvupóstur dagsettur 5. október 2015 frá Leikfélagi Sauðárkróks þar sem fram kom ósk um endurnýjun á sviðsljósabúnaði í Félagsheimilinu Bifröst.

Byggðarráð samþykkti á fundinum að taka allt að 1.500.000 krónur af fjárveitingu framkvæmda við Bifröst á árinu 2015 til að endurnýja kastara og demmera. 

Fleiri fréttir