1,5 milljónir frá Ferðamálastofu á Norðurland vestra
Ferðamálastofa veitti á dögunum styrki til úrbóta á ferðamannastöðum fyrir árið 2011 en að þessu sinni hlutu tvenn verkefni á Norðurlandi vestra styrk. Á Sturlungaslóð 300.000 fyrir verkefnið Fosslaug og Ósfell ehf 1.200.000 fyrir verkefnið stefnumót við Vatnsnes.
Knútur Arnar Óskarsson er í forsvari fyrir Ósfell en fyrirtækið rekur ferðaþjónustu í gamla húsinu á Ósum á Vatnsnesi auk þess að hafa staðið fyrir byggingu smáhýsa á svæðinu. „Við munum nota styrkinn til hönnunar og undirbúnings á byggingu á salernisaðstöðu fyrir þá fjölmörgu ferðamenn sem leggja leið sína á Vatnsnesið ár hvert. Styrkurinn mun koma okkur af stað með verkefnið en eins og staðan er í þjóðfélaginu í dag mun verkefnið ekki fara lengra en á hönnunarborðið í ár, segir Knútur í samtali við Feyki.is nú í morgun.
Að sögn Kristínar Jónsdóttur hjá Sturlungaslóð er verkefnið Fosslaug endurgerð á laug frá Sturlungatímanum sem félagið hefur byggt upp við Reykjafoss ofan Vindheimamela. –Þar er lítil laug, sýnishorn af þessum gömlu laugun og er styrkurinn ætlaður til þess að laga aðgengi við laugina og merkingar auk þess sem klára þarf frágang við laugina,“ segir Kristín.