16,7 kílóa meðalvigt hjá KS

Mynd úr myndasafni.
Mynd úr myndasafni.

Sláturtíð hjá Kjötafurðastöð KS lauk 28. okt síðastaliðinn en alls var slátrað rúmlega 107 þúsund fjár. Síðasta sauðfjárslátrun ársins verður svo þriðjudaginn 29. nóvember en þá verður slátrað sameiginlega fyrir Kjötafurðastöð KS og Sláturhús KVH, á Hvammstanga.

Á heimasíðu Afurðastöðvarinnar segir að ekki verði tekið á móti rúnum lömbum í slátrunina í lok nóvember né heldur verður greitt fyrir hrúta. Þá er bændum bent á að engin páskaslátrun verður á næsta ári.

Hér fyrir neðan má sjá stöðuna eins og hún var eftir hverja viku fyrir sig í haust.

 

 

Fjöldi alls

Meðalþyngd

Gerð

Fita

1.vika

10.150   

17,43

9,15

6,95

2.vika

26.514   

17,03

9,13

6,74

3.vika

43.003   

17,01

9,12

6,72

4.vika

59.538   

16,95

9,1

6,73

5.vika

76.024   

16,87

9,06

6,71

6.vika

92.767   

16,74

9,02

6,67

7.vika

107.138

16,7

8,99

6,55

Fleiri fréttir