17. júní á Sauðárkróki

Á Sauðárkróki verða að vanda hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní. Héraðsmótt UMSS í sundi verður haldið þennan dag, helgistund verður í Sauðárkrókskirkju, boðið upp á andlitsmálun, skrúðgöngu og hátíðardagskrá og samverustund á Flæðunum. Í tilefni dagsins bjóða nokkrir veitingastaðir upp á hátíðarkaffi.

Dagskrá hátíðarhalda á Sauðárkróki 17. júní næstkomandi:
Kl. 10:30 Þjóðhátíðarsundmót
Héraðsmót UMSS fer fram í sundlaug Sauðárkróks. Skráning á sund@tindastoll.is til 14. júní. Eftir að mótinu lýkur verður laugin opin almenningi til kl 17.

Kl. 11:00 Helgistund í Sauðárkrókskirkju
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organista. Halla Rut Stefánsdóttir guðfræðingur leiðir stundina og flytur hugleiðingu.

Kl. 12:30 Andlitsmálun við Skagfirðingabúð
Félagar úr Skátafélaginu Eilífsbúum selja gasblöðrur á vægu verði.

Kl. 13:40 Skrúðganga
Frá Skagfirðingabúð að Flæðum

Kl. 14:00 Hátíðardagskrá á Flæðunum (norðan sundlaugar)
Hátíðarræðu flytur Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir. Fjallkonan flytur ljóð. Útitónleikar þar sem fram koma Ingunn Kristjáns og Reynir Snær, Funk that shit og Contalgen „mineral.“

Kl. 14:30 Samverustund á Flæðunum
Skátatívolí og ýmsar þrautir fyrir börn og fullorðna. Hestar og börn-teymt undir börnum á hestbaki.

Kaffi í tilefni dagsins.
Í tilefni dagsins bjóða nokkrir veitingastaðir upp á glæsilegt kaffihlaðborð sem Skagfirðingar geta keypt sér og bragðað brot af því besta.

Þjóðhátíðarkaffi og kaka dagsins kl 15-17 að hætti Áskaffis í Glaumbæ.
Þjóðhátíðarkaffihlaðborð á Kaffi Krók kl 14-17.
Heitt súkkulaði og rjómaterta í Lónkoti kl 14-16:30.
Kaffihlaðborð í Ljósheimum kl 14-18.

Fleiri fréttir