2. bekkur fékk litabók um eldvarnir
Lionsklúbburinn Björk á Sauðárkróki fór í sína árlegu heimsókn til 2. bekkjar Árskóla á dögunum og færði þeim litabókina Brunavarnir á heimilum. Sem fyrr var með þeim í för varaslökkviliðsstjóri Skagafjarðar, Kári Gunnarsson.
Bókin er gefin út af Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ og hafa Lionsklúbbar víða á landinu farið í skólana í þessum erindagjörðum um svipað leyti. Krakkarnir tóku heimsókninni vel og mörg hver virtust vel með á nótunum. Eftirfarandi myndir tók Mínerva Björnsdóttir.