50 börn hafa skráð sig í körfuboltabúðir Tindastóls

Fjöldi fólks sótti kynningarfund um körfuboltabúðir Tindastóls í sumar sem haldinn var í Húsi frítímans. Á fundinum kynntu forsvarsmenn körfuknattleiksdeildarinnar auk Borce Ilievski yfirþjálfara, undirbúning að starfsemi búðanna í sumar. Nú þegar hafa um 50 heimabörn skráð sig í búðirnar.

Í upphafi var farið yfir undirbúninginn og upplýsingar kynntar um búðirnar. Á fundinum kom fram að þrír af fjórum þjálfurum sem hyggjast koma á Krókinn í sumar hafa staðfest þátttöku sína, en þetta eru Perry Hunter þjálfari Henryville High School í Indiana í Bandaríkjunum, Goran Miljevic frá Serbíu, sem þjálfað hefur bæði hjá félagsliðum og landsliðum Líbíu og Luigi Gresta frá Ítalíu, sem starfar nú sem framkvæmdastjóri Aurora Basket sem leikur í Liga 2 á Ítalíu, en Luigi hefur víðtæka þjálfarareynslu. Fjórði þjálfarinn kemur frá Spáni en ekki liggur fyrir staðfest hver það verður að svo stöddu.

Þjálfaranámskeið verður haldið í aðdraganda búðanna, þar sem hinir  fjórir erlendu gestir auk Borce Ililevskil, munu verða með verkleg námskeið, föstudaginn 10. og laugardaginn 11. júní.

Kynning hefur farið fram á heimavelli undanfarna daga og nú hafa rúmlega 50 krakkar forskráð sig til leiks. Mikilvægt er að heimakrakkar forskrái sig sem allra fyrst svo hægt verði að tryggja þeim sæti í búðunum. Hægt er að gera það á netfangi búðanna.

Í næstu viku verða körfuboltabúðirnar síðan kynntar á landsvísu og upp frá því verður hægt að skrá aðkomuþátttakendur í búðirnar en þá ættu allar nauðsynlegar upplýsingar að liggja fyrir.

Nánari upplýsingar verða veittar í gegn um netfangið korfuboltabudir@tindastoll.is

Fleiri fréttir