550 þúsund frá Húsafriðunarsjóði
Húsafriðunarnefnd hefur úthlutað styrkjum úr Húsafriðunarsjóði til fjölda verkefna um allt land. Tvö verkefni Byggðasafns Skagafjarðar fengu að þessu sinni úthlutað. Var þar um að ræða Árbakkaverkefni sem fékk 250 þúsund og Tyrfingsstaðaverkefni sem fékk 300 þúsund krónur.
Byggðasafnið sótti um styrki frá sjóðnum til þessara tveggja verkefna. Sótt var um styrk til að ljúka teikningum og áætlanagerð vegna Árbakka Suðurgötu 5 á Sauðárkróki og til Tyrfingsstaðaverkefnisins, þar sem safnið stendur straum að efniskostnaði og hefur starfsmann við að stýra aðgerðum, skrá og ljósmynda. Sami starfsmaður, Bryndís Zoëga, annast verkstjórn á námskeiðum Fornverkaskólans fyrir hönd samstarfsaðilanna, sem eru Byggðasafnið, Tréiðnadeild Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og Ferðamáladeild Háskólans á Hólum.