61 vilja stöðu sýningavarðar

Á heimasíðu Söguseturs íslenska hestsins segir frá því að alls sótti 61 um stöðu sýningavarðar hjá Sögusetri íslenska hestsins nú í sumar. Sögusetrið hlaut nýverið stuðning Vinnumálastofnunar til að ráða þrjá sýningaverði. Umsækjendur verða látnir vita um niðurstöðu ráðningar á næstu dögum. Stuðningur Vinnumálastofnunar kemur sér afar vel fyrir Sögusetrið.

Forstöðumaður fagnar vinnumarkaðsátakinu og telur vel að því staðið í alla staði. Þess ber að geta að samskonar átak og stuðningur Vinnumálastofnunar átti stóran þátt í að síðastliðið sumar tókst að setja upp og opna sýninga- og starfsaðstöðu Sögusetursins í gamla hesthúsinu á Hólum í Hjaltadal.

Fleiri fréttir