70 rispur heiðruðu Bob Dylan

Á tónleikunum í Bifröst sem fram fóru í síðustu viku, og kenndir voru við Villta svani og tófu, tróð meðal annars upp hljómsveitin 70 rispur og heiðraði Bob Dylan með tveimur lögum. Útsendari Feykis var á staðnum náði að taka lagið I Belive In You upp á stafræmu.

Hljómsveitin var skipuð þeim Ægi Ásbjörns, Guðbjörgu Bjarna, Ásu Svanhildi, feðgunum Guðna Friðriks og Gesti Guðna og bræðrunum Jóa og Palla Friðriks.

Fyrstu mínútuna vantar framan á upptökuna og er beðist velvirðingar á því.

http://www.youtube.com/watch?v=4TZ-gDuFvV0

Fleiri fréttir