850 tonn á land í vikunni
Klakkur SK-5 landaði á mánudag 119 tonnum, þar af voru rösk 90 tonn þorskur til vinnslu hjá FISK-Seafood, restin fór á markað. Á sunnudag og þriðjudag var landað úr Málmey SK-1 um það bil 410 tonnum af frosnum afurðum. Mest var af Karfa eða 240 tonn, 100 tonn af Ufsa, 20 tonn af þorski sem og af Ýsu en minna af öðrum tegundum.
Í gær og í dag er verið að landa úr Örvari SK-2 um 320 tonnum af frosnum sjávarafurðum. Mest er af Grálúðu 170 tonn, Karfi 80 tonn, Gulllax 35 tonn og minna af öðrum tegundum.