9. flokkur drengja í bikarúrslit
9. flokkur drengja komst á föstudaginn í úrslit bikarkeppninnar, þegar strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu Grindvíkinga 63-53.
Pétur Rúnar var stigahæstur með 24 stig og réðu Grindvíkingar illa við hann. Finnbogi setti 12 stig, Viðar 10, Friðrik 7, Kristinn 6, Bjarni 3 og Haukur 1.
Annars var það sterk liðsheild sem skóp þennan sigur og allir að standa sig sem komu inn á völlinn.
Bikarúrslitin fara fram að Ásvöllum í Hafnarfirði um næstu helgi. Mótherjar strákanna verða Haukar. Þessi lið hafa tvisvar sinnum keppt í vetur í Íslandsmótinu. Í fyrri leiknum sigruðu Haukarnir en í seinni leiknum kvittuðu Stólarnir fyrir það tap og unnu.
Úrslitaleikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Haukar-TV og verður tengill inn á útsendinguna settur hér inn á heimasíðuna fyrir helgi.
Til hamingju með árangurinn strákar og stóri strákurinn Kári!!