Á brimbretti við Garðssandinn

Nú þegar norðlendingar fagna því að sumarið kom loksins með sól og blíðu, fara margir á stjá til að fanga geislum sólarinnar. Það var þó einn sem varð á vegi blaðamanns Feykis á dögunum sem þótti norðanáttin góð og notaði vindinn óspart til að draga sig áfram á brimbretti fyrir utan Garðssandinn við Hegranesið í Skagafirði .

Það var Kanadamaðurinn Mark Mckay sem var á ferðalagi á Íslandi og tók með sér rétta útbúnaðinn til að „surfa“ í íslenska sjónum. Fannst honum aðstæður allar alveg frábærar, vindurinn til fyrirmyndar, öldurnar góðar og útsýnið einstakt. Blaðamaður tók nokkrar myndir af kappanum og gat vel ímyndað sér að gaman væri að þeytast um á hvítfryssandi öldunum.

.

Fleiri fréttir