Aðalfundur Bílaklúbbsins í kvöld
Bílaklúbbur Skagafjarðar heldur aðalfund sinn í kvöld á Kaffi Krók á Sauðárkróki og hefst hann klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundastarfa verður rætt um hið árlega Skagafjarðarrall sem fram fer 22. – 23. júlí í sumar.
Að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur formanns klúbbsins ætlar hún að gefa kost á sér til áframhaldandi setu á formannsstóli. Sigurlaug eða Lulla hvetur alla þá sem starfað hafa við Skagafjarðarrallið að koma sem og alla aðra sem áhuga hafa á málefnum bílaíþrótta.