Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Skagafirði

Aðalfundur Félags Sauðfjárbænda í Skagafirði verður haldinn á Löngumýri kl. 20:00 þriðjudaginn 17. febrúr næstkomandi. Á fundinn mæta Atli Már Traustason, sem greinir frá stöðu mála hjá LS og Óli Viðar Andrésson, sölustjóri innanlands hjá Kjötafurðastöð KS.

Nýjir félagar eru boðnir velkomnir í hópinn og geta áhugasamir sett sig í samband við stjórn eða komið óskum á fundinn. Ef félagar hafa tillögur sem þeir vilja koma að á fundinum eru þeir vinsamlega beðnir að koma þeim til stjórnar í síðasta lagi fjórum tímum fyrir fund. Í tilkynningu frá stjórn félagsins eru allir hvattir til að mæta.

Fleiri fréttir