Maddie Sutton til liðs við Stólastúlkur á ný

Maddie Sutton kampakát. MYND: DAVÍÐ MÁR
Maddie Sutton kampakát. MYND: DAVÍÐ MÁR

Líkt og Feykir sagði frá fyrr í morgun þá hefur Körfuknattleiksdeild Tindastóls samið á ný við Maddie Sutton og mun hún mæta til leiks á næstu vikum. „Maddie hefur látið vel að sér kveða innan vallar sem utan og hefur unnið hug og hjörtu leikmanna, þjálfara og stuðningsfólks. Hún er einstaklega geðþekk og jákvæð og kemur með góða stemningu í hópinn,“ segir í tilkynningu frá kkd. Tindastóls.

Í vor mætti Maddie í podcast-þáttinn Stólinn, þar sem hún sagði frá ferli sínum, áskorunum og sinni sýn á skagfirska samfélagið. Viðtalið má nálgast með því að smella hér: >

Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Maddie velkomna aftur og hlakkar til samstarfsins. Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir