Aðalfundur Ferðafélags á morgun
Ferðafélag Skagfirðinga heldur aðalfund sinn fyrir árið 2015 á morgun, miðvikudaginn 7. desember klukkan 20:30. Fundarstaður er Sveinsbúð, húsnæði Skagfirðingasveitar, að Borgarröst 1 á Sauðárkróki.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og allir velkomnir.
Í stjórn félagsins eru nú Ágúst Guðmundsson, formaður, Hjalti Pálsson, Sigurlaug Ebba Kristjánsdóttir, Trond Olsen og Þorsteinn Kárason.
Á heimasíðu félagsins má sjá að starfsemi þess er með miklum ágætum, fjöldi ferða sem í boði voru á árinu. Þá eru skálarnir fjórir sem félagið á og leigir út til ferðamanna.