Aðalfundur hestamannafélagsins Stíganda 31. mars

Aðalfundur hestamannafélagsins Stíganda verður haldinn í Torfgarði þriðjudaginn 31. mars kl. 20:30. Á fundinum fara m.a. fram kosningar um sameiningu hestamannafélaganna í Skagafirði. „Til að sameining geti átt sér stað þurfa ¾ hluti félagsmanna að mæta,“ segir í Sjónhorninu.

Einnig verða venjuleg aðalfundastörf. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Í Sjónhorninu sem kom út í dag segir að fundurinn verði þann 3. mars. Það mun ekki vera rétt en líkt og fram kemur hér að ofan þá verður hann 31. mars - leiðréttist það hér með og er beðist velvirðingar á þessum leiðu mistökum.

Fleiri fréttir