Aðalfundur körfuknattleiksdeildar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
25.06.2013
kl. 16.16
Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldinn í vallarhúsinu miðvikudaginn 10. Júlí kl 20. Fyrir fundinum liggja almenn aðalfundarstörf, auk tillögu um breytingu á reikningsári, að því er segir í tilkynningu frá stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Fleiri fréttir
-
Það var messað í Fellskirkju
Það er ekki á hverjum degi sem messað er í Fellskirkju í Slétthlíð í Skagafirði og má kannski segja að í dag geti það talist til tíðinda. Það var séra Karl V. Matthíasson sem var trúað fyrir að messa í Fellskirkju eins og hann kemst sjálfur að orði í Facebook-færslu en hann segir stundina hafa verið dásamlega með dásamlegu fólki. „Það er gott að elska og treysta. Svo var altarið líka skreytt með alvöru fallegum blómum,“ skrifar séra Karl.Meira -
Þegar eitthvað fer úrskeiðis er heilbrigðiseftirlitið kallað til | Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Fáir hugsa um heilbrigðiseftirlit í dagsins önn. Það er eðlilegt. Þegar allt gengur vel taka flestir ekki eftir því starfi sem unnið er á bak við tjöldin til að tryggja örugg matvæli, hreint neysluvatn og heilnæmt umhverfi.Meira -
B og D-listi hafa myndað meirihluta í Húnaþingi vestra
Á fallegu kvöldi á Borðeyri, á síðasta degi maímánaðar, undirrituðu Örn Arnarson fyrir hönd D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra, og Sigurður Líndal fyrir hönd B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna, samkomulag um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Húnaþings vestra fyrir kjörtímabilið 2026-2030.Meira -
Kvikmyndabraut FNV er ódýr leið til að ná færni í faginu
Nemendur við kvikmyndabraut Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra stofnuðu nýlega í sameiningu TikTok-reikning þar sem þeir sýna brot úr náminu og einnig hvernig námið hefur nýst þeim. Þetta er gert til að kynna kvikmyndanámið við FNV fyrir áhugasömum nýnemum um land allt en nemendur á brautinni hafa í gegnum tíðina komið víða að af landinu. Feykir tók Árna Gunnarsson, kennara á kvikmyndabraut tali og spurði um kynninguna og námið á brautinni.Meira -
ReSource gerir samning um umhverfisvöktun fyrir Stekkjarvík
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 02.06.2026 kl. 10.07 oli@feykir.isReSource hefur gert samning við Norðurá bs. um umhverfisvöktun urðunarstaðarins í Stekkjarvík. Á vef SSNV segir að Norðurá bs. reki urðunarstaðinn, sem er staðsettur í landi Sölvabakka á Blönduósi. Byggðasamlagið er í eigu þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, en þjónustusvæði urðunarstaðarins nær yfir mestallt Norðurland.Meira
