Aðalfundur Leikfélagsins færist í Jarlsstofu
Aðalfundur Leikfélags Sauðárkróks verður haldinn í kvöld, miðvikudagskvöldið 8. júní, kl 20:00. Fundarstaður hefur verið færður til og verður fundurinn í Jarlsstofu á neðstu hæð Hótel Tindastóls, en ekki á Kaffi Krók eins og auglýst hafði verið.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og eru allir boðnir velkomnir, í tilkynningu frá stjórn félagsins.