Aðalfundur Léttfeta framundan

Aðalfundur hestamannafélagsins Léttfeta verður haldinn í Tjarnarbæ fimmtudaginn 31.mars kl 20.30 í Tjarnarbæ. Meðal fundarliða er formannskosning en Guðmundur Sveinsson gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu á formannsstóli.

Guðmundur hefur starfað sem formaður félagsins um árabil og telur komið gott að sinni. Áhugasamir formannskandidatar ættu því að dusta rykið af framtakshugsjónum sínum og mæta á aðalfundinn vel undirbúnir.

Dagskrá fundarins:

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Önnur mál

Fleiri fréttir