Aðalfundur Sögufélags Skagfirðinga
Aðalfundur Sögufélags Skagfirðinga var haldinn föstudaginn 4. nóvember sl. í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Formaður félagsins, Hjalti Pálsson, fór yfir starfsemi félagsins á árinu og rakti m.a. bókaútgáfu á vegum þess. Þá var ársreikningur félagsins fyrir árið 2010 samþykktur.
Að þessu sinni voru útgjöld félagsins svipuð og tekjurnar, en á árinu kom aðeins út ársritið Skagfirðingabók, auk fimmta bindis Byggðasögu Skagafjarðar, en Byggðasagan er sérstakt útgáfuverkefni sem hefur sjálfstæðan fjárhag. Áfram var unnið að ritun þátta fyrir Skagfirskar æviskrár og hefur Egill Bjarnason unnið mikið þrekvirki við að safna efni í fjölmarga þætti sem bíða nú frekari úrvinnslu og útgáfu. Stefnt er að útgáfu æviskráa verði haldið áfram árið 2013, en á næsta ári komi út Skagfirðingabók venju samkvæmt.
Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Hjalti Pálsson formaður, Sigríður Sigurðardóttir, Sigríður Þorgrímsdóttir, Sigfús Ingi Sigfússon og Unnar Ingvarsson.
/sogufelag.skagafjordur.is