Aðalfundur Tindastóls í kvöld
Aðalfundur Tindastóls verður haldinn í kvöld 7. mars í Húsi frítímans og hefst klukkan. 20.00. Auk almennra aðalfundastarfa verða styrkir veittir úr minningarsjóði Rúnars Inga Björnssonar.
Á fundinum verður einnig skrifað undir styrktarsamning milli Tindastóls og Sparisjóðs Skagafjarðar sem þá verður aðalstyrktaraðili Tindastóls. Á fundinum verður boðið upp á veitingar í boði Sparisjóðsins.
Aðalstjórn Tindastóls vonast til að sjá sem flesta á fundinum.