Aðeins 10% leik- og grunnskóla fengu skoðun

Árið 2011 voru 265 leikskólar og 171 grunnskólar á landinu en ekki er vitað hversu mörg opin leiksvæði eru,segir á vef Umhverfisstofnunar. Í Reykjavík, svo dæmi sé tekið eru starfræktir 46 grunnskólar og 95 leikskólar og opin svæði eru um 250 talsins. Aðalskoðun leiksvæða og leikvallatækja á að framkvæma einu sinni á ári til að staðfesta öryggi tækja, undirstöður þess og umhverfi. Svf. Skagafjörður er eitt örfárra sveitarfélaga sem hefur  látið aðalskoða öll leiksvæði á sínu svæði.

Árið 2012 fengu 168 leiksvæði aðalskoðun á öllu landinu, þar af voru 43 leiksvæði á leik- og grunnskólum eða tæp 10% allra leik- og grunnskóla landsins. Umhverfisstofnun hefur sent umhverfis- og auðlindaráðuneytinu bréf þess efnis að skoðað verði hvernig hægt sé að tryggja að farið sé að ákvæðum reglugerðarinnar þannig að jafnræðis sé gætt á landsvísu.

Leiksvæði er skilgreint sem svæði, hvort sem er innan dyra eða utan, skipulagt fyrir leik barna svo sem í eða við leikskóla, skóla, gæsluvelli og opin leiksvæði. Einnig leiksvæði annarra aðila þar sem börn eiga greiðan aðgang að eða ætlað börnum svo sem í eða við fjöleignarhús, frístundahús, tjaldsvæði, verslunarhúsnæði og samkomustaði. Leiksvæðum á að velja stað þar sem börnum stafar ekki hætta eða ónæði frá umhverfinu og leikvallatæki eiga að uppfylla ákveðnar öryggiskröfur.

Hvaða leiksvæði hafa verið aðalskoðuð?

Ábyrgðaraðilar sem hafa látið aðalskoða öll leiksvæði í þeirra ábyrgð undanfarin ár eru m.a. Skagafjörður, Grindavíkurbær, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur sem að rekur opin leiksvæði við sumarhús í Miðhússkógi og á Flúðum, Ölfusborgir sumarhúsahverfi sem býr yfir opnum leiksvæðum, Verslunarmannafélag Suðurlands sem rekur opin leiksvæði á Flúðum, Strandabyggð og Grenivík, Grýtubakkahreppi.

HÉR er hægt að sjá hvaða leiksvæði fengu aðalskoðun árið 2012

Fleiri fréttir