Aðstoða slasaðan vélsleðamann
Björgunarsveitin Húnar frá Hvammstanga var kölluð út í gær þegar tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann. Hafði hann ekið fram af snjóhengju í suðurhluta Vatnsnesfjalls fyrir ofan Hvammstanga.
Svo vel vildi til að björgunarsveitarmeðlimir voru á heimleið frá æfingu á Arnarvatnsheiði, samkvæmt heimasíðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og voru því tiltölulega snöggir á slysstað.
Björgunarsveitin flutti lækni og sjúkraflutningamenn á staðinn þar sem búið var um áverka mannsins og hann búinn til flutnings í björgunarsveitabíl. Hann reyndist vera bæði handleggs- og fótbrotinn en með góða meðvitund.
Um 20 björgunarsveitamenn komu að aðgerðinni.