Æfðu sig og klifur í Fljótum
feykir.is
Skagafjörður
31.01.2014
kl. 14.12
Þegar blaðamaður Feykis átti leið í Fljótin um síðustu helgi urðu á vegi hans nokkrir nemendur úr Menntaskólanum við Tröllaskaga. Dvaldi hópurinn á Bjarnargili í Fljótum við æfingar í ísklifri, klettaklifri, sigi og ýmsu því tengdu.
Leiðbeinandi hópsins var Rúnar Gunnarsson. Fram kemur á heimasíðu MTR.is að þau hafi fengið góðar móttökur á Bjarnargili og að þau hafi notað laugardaginn í að klifra og síga ýmislegt fleira. Nánar um þetta má lesa á www.mtr.is