Æfingar hafnar á Allt í plati
Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Sauðárkróks á barnaleikritinu Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson en það er sambland úr þekktum barnaleikritum eftir Thorbjörn Egner (Karíus og Baktus, Dýrin í Hálsaskógi, (Kardemommubærinn) og Astrid Lindgren, (Lína Langsokkur).
Leikarar eru tólf talsins og nokkrir að stíga sín fyrstu skref með LS. Styttri leikgerð af verkinu var sýnd á Sauðárkróki þann 17. júní árið 2003, en einnig hafa nokkur af þeim verkum sem eru inní verkinu verið sýnd á vegum LS og persónur þeirra því sprottið fram í meðförum ýmissa leikara á svæðinu.
Þau leikrit sem um ræðir og koma við sögu í Allt í plati og hafa verið sýnd af Leikfélagi Sauðárkróks eru Lína Langsokkur (1986), Kardemommubærinn (1987) og Dýrin í Hálsaskógi (1994).
Það er Lína sem leiðir leikinn og kynnir til sögunnar þekktar persónur; Mikka ref, Lilla klifurmús, Ömma mús, Jesper, Kasper og Jónatan, Soffíu frænku og Karíus og Baktus.
Þekkt tónlist spilar stóran þátt í verkinu og leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir.