Ævintýraleg útikennsla leikskólabarna í Varmahlíð
Fjórir nemendur á ferðamálabraut við Háskólann á Hólum komu í Leikskólann Birkilund í Varmahlíð og voru með tveggja tíma útidagskrá fyrir börnin í síðustu viku. „Fyrst var farið í leik við leikskólann, en síðan var haldið í skóginn þar sem unnið var með upplifun, farið í leiki og bakað brauð yfir eldi. Börnin breyttust í índjána og læddust um skóginn,“ segir á heimasíðu leikskólans.
Það var Pálína Hraundal kennari í Náttúrutengdri ferðaþjónustu og Útivist og upplifun við Háskólann á Hólum sem kom með nemana með sér í Birkilund.
„Það var mjög skemmtilegt að fá þessa heimsókn og mögulega geta kennarar Birkilundar nýtt sér eitthvað af því sem þær upplifðu í þessu prógrammi,“ segir loks á heimasíðunni.