Afhentu ABC barnahjálp peningagjöf

Þessar duglegu stelpur á Hvammstanga söfnuðu á dögunum 13.573 kr til styrktar ABC barnahjálp. Þetta eru þær Katla Anný, Bríet Ingibjörg, Arna Ísabella og Steinunn Daníela. ABC barnahjálp er íslenskt hjálparstarf, stofnað árið 1988. Starfið snýst um það að gefa fátækum börnum tækifæri til menntunar og hjálpa götubörnum til nýs lífs með því að veita þeim heimili og menntun.

ABC barnahjálp starfar nú í sex löndum Asíu og Afríku en þau eru: Indland, Pakistan, Filippseyjar, Kenýa, Úganda og Burkina Faso. Samkvæmt heimasíðu ABC barnahjálpar, styrkja samtökin þúsundir barna til náms og búa mörg þeirra á heimavistum og barnaheimilum ABC. ABC skólarnir veita nemendum frá 3ja ára aldri ókeypis menntun, skólagögn, skólabúning, læknishjálp og mat.

Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar og kemur styrkur þeirra Kötlu, Bríetar, Örnu og Steinunnar sér vel í baráttunni.

Fleiri fréttir