Afmæli Húss frítímans í dag

Í dag þriðjudaginn 1. mars er íbúum Skagafjarðar boðið í kaffi og kleinu frá kl. 18.30 til 22:00 í Húsi frítímans en tvö ár eru nú liðin síðan það opnaði. Í Húsi frítímans hefur verið rekin öflug starfsemi fyrir Skagfirðinga en fólk á öllum aldri hafa aðstöðu til tómstundastarfs í húsinu.

Á heimasíðu Húss frítímans segir að þar geti eldri borgarar spilað á spil á meðan prjónaklúbbur starfar, kór æfir og unglingar eru á netinu eða spila billjard við afa, svo dæmi af einum raunverulegum degi sé tekið.

Í tilefni dagsins ætlar skagfirskt tónlistarfólk að spila fyrir gesti frá kl. 19:00 þar á meðal eru Rock to the moon, Sigvaldi Helgi, Fúsi Ben og Silla V, Róbert og Félagar.

Fleiri fréttir