Afmælishátíð fullveldisins í Varmahlíðarskóla

Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands verður efnt til afmælishátíðar í Varmahlíðarskóla á morgun, fimmtudaginn 15. nóvember milli kl. 13:00 og 15:30 undir yfirskriftinni Fullveldi – frelsi – lýðræði – hvað er nú það? Þar munu nemendur Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi leitast við í stuttum leikþáttum að skyggnast aftur í tímann en einnig verður horft til framtíðar með hugtökin fullveldi, frelsi og lýðræði að leiðarljósi.

Hluti dagskrárinnar er málþing en þar flytja fulltrúar hugleiðingar um ofangreind hugtök og velta einnig fyrir sér framtíðarhorfum. 

Húsið opnar kl. 13:00 og þá geta gestir komið og gengið um skólann, séð verk af ýmsum toga, hlýtt á málþing kl. 13:30 - 14:10 og fengið sér hressingu.

Þátttakendur hátíðarinnar eru Varmahlíðarskóli, Grunnskólinn austan Vatna, eldri borgarar og góðir gestir. Allir eru velkomnir á hátíðina.  /FE

Fleiri fréttir