Afmæliskaffi hjá Starfsmannafélagi Skagafjarðar

Starfsmannafélag Skagafjarðar stendur nú á tímamótum en það fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Í tilefni þess er félagsmönnum og velunnurum boðið til kaffisamsætis sunnudaginn 27. mars nk. í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki kl. 15:00.

Fólk er hvatt til að mæta og njóta skemmtilegrar dagskrár og veisluveitinga. M.a, mun Hilmir Jóhannesson flytja ávarp og feðgarnir á Löngumýri, Sigvaldi og Gunnar Rögnvaldsson leika af fingrum fram. Veislan hefst klukkan 15:00 og stendur fram eftir degi.

Fleiri fréttir