Áforma nýtt hótel á Króknum

Mbl.is greinir frá því að félagið Faxatorg ehf. hafi lagt inn umsókn hjá byggingar- og skipulagsnefnd sveitarfélagsins Skagafjarðar um lóð fyrir 60 herbergja heilsárshótel á Sauðárkróki. . Binda aðstandendur Faxatorgs vonir við að geta hafið jarðvinnu í haust, byggingarframkvæmdir vorið 2012 og hótelið verði opnað sumarið 2013.

Var umsóknin tekin fyrir í nefndinni í gær og samþykkt að setja í gang deiliskipulagsvinnu á svæðinu með hugmyndir Faxatorgs að leiðarljósi. Svæðið sem um ræðir er á milli Sundlaugar Sauðárkróks og Safnahúss Skagfirðinga, þar sem nú er tjaldstæði á vegum sveitarfélagsins.

Nánar á mbl.is

Fleiri fréttir