Áfram fjör á Eldi 2011
Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi stendur nú sem hæst en tveir dagara eru að baki og tveir eftir. Núna klukkan þrettán byrjaði töfrabragðanámskeið en síðan er bogfimi, tónleikar líf og fjör þar sem eftir lifir þessum föstudegi.
Dagskráin í dag er svohljóðandi;
Kl. 13:00 verður töfrabragðanámskeið fyrir krakkana öllum aldri og einnig verður förðunarnámskeið fyrir 12 ára og eldri. Námskeiðin fara fram í Félagsheimmilinu á Hvammstanga.
Kl. 15:00 verður bogfiminámskeið á vegum Grettistaks og fer fram við Félagsheimilið á hvammstanga.
kl. 16:15 erum við enn í Félagsheimilinu á Hvammstanga og þá fer fram heimsmeistaramótið í Kleppara.
Kl. 21:00 hefjast tónleikar í Borgarvirki. að þessu sinni koma fram Mundi og Dívurnar og Egill Ólafsson. Til að umferðin gangi sem best fyrir sig eru gestir hátíðarinnar beðnir um að koma að Borgarvirki sunnan megin og fara norðureftir á heimleiðinni.
Kl. 23:30 (eða eftir tónleikana í Borgarvirki) verða svo dúndurtónleikar í Félagsheimilinu á Hvammstanga með Breiðfjörð og Blúströllunum. Aðgangseyrir er 1.000 og 18 ára aldurstakmark.