Afskipti veiðieftirlitsmanns af gæsaveiðimönnum í Húnaþingi vestra
Sl. föstudagskvöld, þurfti veiðieftirlitsmaður Húnaþings vestra að hafa afskipti af veiðimönnum sem voru við gæsaveiðar í löndum sveitarfélagsins á Víðidalstunguheiði án leyfis. Veiðimennirnir sem voru tveir báru fyrir sig að þeir hefðu talið sig í almenningi og formaður SKOTVÍS hefði tjáð þeim að svo væri.
Á vef Húnaþings vestra segir að það hafi komið veiðimönnunum á óvart að búið væri að úrskurða um þetta svæði þar sem klárlega er staðfest að umrædd lönd séu í fullkominni einkaeign sveitarfélagsins.
Mönnunum var gert að yfirgefa svæðið en sleppt við kæru með þeim orðum að ekki væri hægt að bera fyrir sig þekkingarskorti að nýju. Húnaþing vestra gefur út takmarkaðan fjölda leyfa til skotveiða í umrædd lönd gegn sanngjarnri þóknun og heldur jafnframt úti virku eftirliti með svæðinu svo komast megi í veg fyrir óleyfilegar veiðar.
Reglur um gæsaveiðar 2018 í eignarlöndum Húnaþings vestra er hægt að nálgast á hunathing.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.