Afþakka hækkun á launakjörum

Frá Sauðárkróki.
Frá Sauðárkróki.

Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær var sammþykkt að afþakka þá launahækkun sem kjörnum fulltrúum í stjórnum, ráðum og nefndum á vegum sveitarfélagsins ber, eftir að kjararáð ákvað að hækka þingfararkaup um 44% þann 29. október síðastliðið. Viðmið um grunnlaun, þóknanir og starfstengdan kostnað eru sett sem hlutfall af þingfararkaupi hverju sinni og hefði hækkunin því leitt til hækkunar á áðurnefndum þóknunum.

Í bókun byggðarráðs frá í gær segir:

Samkvæmt samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum Sveitarfélagsins Skagafjarðar þá eru viðmið um grunnlaun, þóknanir og starfstengdan kostnað sett sem hlutfall af þingfararkaupi á hverjum tíma.Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vísar því til sveitarstjórnar að hafna hækkun á launakjörum fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum sveitarfélagsins, sem leiðir af 44% hækkun þingfararkaups sem kjararáð úrskurðaði um þann 29. október s.l.

Fleiri fréttir