Afturelding tekur sæti Tindastóls
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
28.01.2014
kl. 15.50
Mótanefnd KSÍ hefur samþykkt erindi Tindastóls um að Tindastóll flytjist úr A-deild Lengjubikars karla og leiki í B-deild Lengjubikars karla. Sæti Tindastóls í A-deildinni tekur Afturelding en Mosfellingar höfnuðu í 3. sæti í 2. deildinni í sumar.
Eins og Feykir hefur fjallað um íhuguðu Tindastólsmenn á dögunum að draga lið sitt úr keppni í 1. deildinni í sumar og hefði Afturelding þá tekið sæti liðsins, en á endanum ákváðu forráðmenn Stólanna að halda áfram sínu striki og spila í 1. deildinni.