Áheitasöfnun fyrir dansmaraþonið byrjuð
Hið árlega dansmaraþon 10. bekkinga Árskóla fer fram dagana 27.-28. október nk. þar sem dansað verður daginn út og daginn inn til að safna fyrir Danmerkurferð í vor. Nemendurnir eru þegar farnir að ganga í hús og fyrirtæki til að safna áheitum.
Dansað verður í 26 tíma, fyrst í Árskóla frá kl. 10-19 og svo í íþróttahúsinu frá kl. 19-22 en þar verður einnig sérstök danssýning sem allir nemendur skólans taka þátt í, á milli kl. 17-17:30.
Hluti af fjáröfluninni verður veitingasala á fimmtudeginum 27. október. Þá gefst bæjarbúum tækifæri til að panta sér kvöldmat í matsal skólans, þar sem krakkarnir munu sýna dans við undirleik skagfirskra tónlistarmanna. Í matinn verður Lasagne ásamt brauði, salati og gosi, en einnig verður hægt að fá matinn sendan heim.
Á meðan dansmaraþoninu stendur verður hægt að koma og fá sér heitt kaffi og heimamabakað bakkelsi á milli kl. 16:30-22. Þar verður jafnframt hægt að kaupa sér sérstaka maraþonboli, sem koma í takmörkuðu upplagi.
Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir um að taka vel á móti ungmennunum.