Áki – Eðalbílar opnar eftir helgi

Þeir feðgar Pétur Jóhannsson og Jóhann Ingólfsson ætla að opna bílaverkstæði að Borgarteig 5 á Sauðárkróki þar sem aðaláhersla er lögð á hraðþjónustu. Hefur verkstæðið hlotið nafnið Áki – Eðalbílar sf.

Að sögn þeirra feðga felst hraðþjónustan aðallega í styttri bílaviðgerðum, eftirliti, olíu- og dekkjaskiptum, bremsuviðgerðum og þess háttar. Einnig verður boðið upp á bón og þrif og varahlutaútvegun.

-Við ætlum að leggja okkur fram um að hafa góða og persónulega þjónustu segja þeir Jóhann og Pétur sem eru bjartsýnir á framtíðina. Verkstæðið verður opnað á mánudaginn 14. mars en öllum er boðið að þiggja kaffi laugardaginn 12. mars þar sem hægt verður að skoða aðstöðuna og heilsa upp á þá feðga.

Fleiri fréttir