Akrahreppur færir Varmahlíðarskóla góða gjöf
Á heimasíðu Varmahlíðarskóla segir frá því að nýlega kom oddviti Akrahrepps, Agnar H. Gunnarsson, í skólann færandi hendi með IV. bindi Byggðasögu Skagafjarðar en þar er fjallað um Akrahrepp. Afhenti Agnar bókina sem er gjöf hreppsins til bókasafns skólans.
Skólastjóri tók við gjöfinni og bað fyrir þakklæti og kveðjur til sveitarstjórnar Akrahrepps. Lét skólastjóri þess getið, að hann vonaðist sannarlega til þess að hitt sveitarfélagið í Skagafirði fylgdi eftir þessu góða fordæmi og sæi til þess að byggðasagan í heild sinni væri til í bókasöfnum allra skólanna í héraðinu.